Almenn lýsing
Palmanova er frábær ferðamannastaður á Mallorca, þar sem tilvalið er að eyða fríinu. Strendurnar 3 sem tilheyra bænum eru með hvítum, mjúkum sandi og hafið er tært og túrkisblátt. Veitingastaðir, verslanir, barir og næturklúbbar, þú finnur þetta allt í Palmanova. Hægt er að ganga eftir strandgötunni til Magaluf.