Almenn lýsing
Tossa de Mar er talinn vera meðal þeirra allra fallegustu bæjum Costa Brava og laðar til sín heilmarga ferðamenn. Þetta gamla fiskimannaþorp er nú orðið að einum vinsælasta ferðamannastað á svæðinu sem trekkir að ferðamenn með tveggja kílómetra strandlengju, fornum minnisvörðum og áhugaverðum gönguleiðum. Helsta kennileiti Tossa de Mar er kastalinn en auðvelt er að ganga upp að honum og er styttan af Ava Gardner eitthvað sem allir ættu að skoða sem leggja leið sína til Tossa de Mar.