Rafhjólaferð um Prosecco hérað með Þóru Katrínu
UPPSELTEkki missa af tækifærinu að hjóla um Prosecco hérað Ítalíu, þetta hjómar ótrúlega vel.
Við byrjum í bænum Bassano del Grappo sem er falinn gimsteinn á norður Ítalíu þar sem áin Brenta rennur í gegn. Heillandi gamli bærinn dregur að ferðamenn frá öllum heimshornum, Ponte Vecchio eða gamla brúin er helsta kennileitið en miðbærinn tengir þröngar götur og stræti við falleg torg, þar sem verslanir, barir og sögulegar byggingar eru á hverju horni. Hér er tilbakið að smakka grappa sem er ítalskt vínberjabrennivín og á rætur sínar að rekja í bæinn.
Haldið er til Lido de Jesolo sem er hefðbundinn ítalskur strandbær, með fallegri 15 kílómetra strandlengju þar sem röndóttar sólhlífar einkenna strandlífið. Þessi líflegi bær hefur heillað ferðamenn í áratugi. Hér kemur fólk til að njóta strander og skemmta sér.
Fyrstu 4 næturnar verður gist á 4 stjörnu hótelinu Bonotto Hotel Palladio í Bassano del Grappa Hótelið er í rólegu hverfi, stutt frá miðbænum með útsýni yfir Monte Grappa. Á hótelinu eru 68 herbergi með loftkælingu, síma, sjónvarpi, öryggishólfi, smábar, hárþurrku, þráðlausu neti og te/kaffi aðstöðu.
Seinni 3 næturnar verður gist á 4 stjörnu hótelinu Hotel le Soleil í Lido de Jesolo. Huggulegt hótel við fallega ströndina í Lido de Jesolo, fallegur sundlaugargarður og sérsvæði á ströndinni. Á hótelinu er veitingastsaður með útsýni yfir ströndina. Herbergin eru í ljósum litum, þau eru loftkæld með svölum. Á hótelinu er líkamsrækt og heilsulind.
Fararstjóri ferðarinnar er Þóra Katrín Gunnarsdóttir annar eigandi Hjólaskólans
Þóra Katrín Gunnarsdóttir hefur starfað sem fararstjóri víða um heim en mest þó á Ítalíu þar sem hún bjó um árabil. Hún vinnur í dag sem leiðsögumaður og hefur einnig starfað sem hjólaþjálfari í mörg ár og er einn af eigendum Hjólaskólans. Þóra Katrín veit fátt skemmtilegra en að ferðast um á hjólinu í góðum félagsskap og búa til skemmtilegar minningar.
10. október
Flogið frá Keflavík til Mílano með Icelandair
17. október
Flogið frá Mílanó til Keflavíkur með Icelandair
10. október
Koma til Milanó, Þóra Katrín heldur með hópinn í rútu til Bassano del Grappa
11. október
Marostica og Breganze – Meðfram kirsuberjatrjám og Torcolato vínleiðinni
Hjólað frá hótelinu til Marostica, sem er þekkt fyrir taflborð í raunstærð. Meðfram hæðum sem eru umvafnar kirsuberjatrjám er komið til Breganze, svæði úrvalsvína, þekkt fyrir Torcolata sætvínið. Vínsmökkun með snarli áður en haldið er tilbaka til Bassano
Hjólaleið: 45 km
Hæðamunur: 270 metrar
Erfileikastig: Miðlungs
12. október
Fallegt landslag Mount Grappa og og Prosecco di Asolo vínleiðin
Hjólað við rætur Mount Grappa að þorpinu Paderno. Hjólað á sléttu og í halla með fallega fjallasýn. Haldið til Monfumo í gegnum hæðótt, fallegt landslag Prosecco vínekranna. Stoppað í léttan hádegisverð á ekta ítalskri vínekru með vínsmökkun og snarli. Hjólað tilbaka til Bassano á flötum sveitavegum framhjá rólegum þorpum.
Hjólaleið: 50 km
Hæðamunur: 500 metrar
Erfileikastig: Miðlungs
13. október
Asolo og bærinn innan múranna Castelfranco Veneto
Hjólað til Asolo, “borg hinna hundrað sjóndeildarhringja”, heimili ljóðskálda og tónlistarmanna frá allri Evrópu síðustu tvær aldir.
Í Pagnano er farið Ezzelini hjólaleiðina, sem er tileinkuð áhrifaríkri miðaldar fjölskyldu sem bjó á svæðinu. Dagurinn endar í Castelfranco Veneto sem er innan bæjarmúra, heimabær Giorgione, hins fræga endurreisnar málara. Castelfranco Madonna meistaraverkið er til sýnis í kirkjunni. Farið til baka til Bassano í lest í 20 mínútur. Í enda ferðarinnar verður farið í grappa brennslu með smökkun.
Hjólaleið: 40 km
Hæðamunur: 190 metrar
Erfileikastig: Auðvelt
14. október
Treviso og áin Sile
Um morguninn er farið til Treviso í rútu, þar sem fallegs útsýnis er notið á leiðinni, þar sem óteljandi síki og stórfenglegar hallir veita einstaka sýn.
Auðvelt hjólaleið í gegnum endalaust grænt svæði í Natural Park of the Sile River, þar sem við endum við lón Feneyja og að lokum Jesolo.
Hjólaleið: 60 km
Hæðamunur: Nánast enginn
Erfileikastig: Auðvelt
15. október
Hjólað um lón Feneyja
Þægilegur dagur þar sem hjólað er um lón Feneyja norðan megin sem eru á Heimsminjaskrá UNESCO Hjólaferð sem býður upp á einstaka náttúrufegurð og söguna eins og hún gerðist, í heillandi umhverfi fallega þorpa sem speglast í vatninu
Bátsferð í gegnum lónið frá Lio Maggiore til Lio Piccolo.
Hjólaleið: 45 km
Hæðamunur: Nánast enginn
Erfileikastig: Auðvelt
16. október
Til Feneyja meðfram ströndinni
Hjólað á flatlendi meðfram Adríahafinu til Punta Sabbioni bryggjunnar. Bátsferð til fallegu Feneyja með innlendri fararstjórn. Frjáls tími til að skoða borgina. Farið til baka til Punta Sabbioni og í rútu til hótels.
Hjólaleið: 25 km
Hæðamunur: Nánast enginn
Erfileikastig: Auðvelt
17. október
Brottför frá hóteli um morguninn
ATH - Breytingar á dagskrá geta átt sér stað