Portó
Porto er oft nefnd sem ein fallegasta borg Evrópu en stór hluti af ásýnd hennar einkennist af ánni Douro sem rennur í gegnum borgina og brúnum yfir hana en þar ber helst að nefna brú Dom Luís I.
Lífið í Porto snýst ekki bara um góða ásýnd og fallegar framhliðar. Hér skiptir innihaldið sannarlega máli. Í þessari veðurparadís leynist nefnilega dásamleg matarmenning. Það borgar sig að ganga um stræti Porto með galtóman maga til að tryggja pláss fyrir allar kræsingarnar sem þarf að narta í á leiðinni.

Skemmtilegt að gera í Portó
Borgarferð um Portó - Tilvalin leið til að kynnast borginni sem er full af menningu og sögu.
Aveiro & Costa Nova - Farið til Aveiro sem eru Feneyjar Portúgals, gamli bærinn skoðaður og farið er í siglingu.
Vínsmökkun í Douro Valley - Vínsmökkun og sigling