Brighton frá Akureyri
Brighton er frábær borg í suðurhluta Englands. Þessi skemmtilega strandborg er alltaf jafnvinsæl. Góðar verslanir, flottir veitingastaðir, The Lanes, Brighton Pier og fjörugt andrúmsloft meðfram ströndinni er meðal þess sem dregur fólk aftur og aftur til borgarinnar. Þú flýgur til Gatwick og tekur lestina í ca 30 mínútur til Brighton.