60+ ferð til Costa Daurada á Spáni

Ferð fyrir 60+ til Salou með Kristínu Tryggva - 28. apríl 2025 í 2 vikur
Ferð fyrir 60+ til Salou með Kristínu Tryggva - 28. apríl 2025 í 2 vikur

Gist verður á Olympus Palace sem er staðsett á besta stað í bænum Salou

Salou er vinsælasti áfangastaður Costa Dorada, 100 km sunnan við Barcelona. Breiðar strendur Salou teygja sig frá Cape La Pineda í norðri til ferðamannabæjarins Cambrils í suðri. Frá maí til október er nóg að gera, þá eru þúsundir ferðamanna á götunum. Þú heyrir skálað í sangríu og finnur lyktina af paellu. Fallegasta gatan er full af margvíslegum börum, veitingastöðum, kaffihúsum og verslunum sem teygja sig meðfram átta kílómetra langri ströndinni.

KRISTÍN TRYGGVADÓTTIR Fararstjóri

Kristín Tyggvadóttir er þaulvanur fararstjóri og einkar vinsæl. Kristín hóf störf hjá íslenskri ferðaskrifstofu vorið 1998 sem fararstjóri erlendis. Kristín hefur unnið við fararstjórn á Spáni og Kanaríeyjum allt árið um kring s.l. 24 ár og einnig farið í sérferðir til Grikklands, Tyrklands, Lettlands, Búdapest, Slóveníu, Kúbu o.fl. staða. Ferðalög eru eitt af aðal áhugamálum Kristínar ásamt útiveru og samverustundum með góðu fólki. Kristín hefur starfað fyrir Aventura síðan 2021.

INNIFALIÐ Í VERÐI FERÐAR

Innifalið
  Flug með Play, 20 kg innrituð taska ásamt 10 kg handfarangri þó ekki stærri en 42x32x25 cm að stærð með handfangi og hjólum
  Gisting á 4 stjörnu hótelinu Olympus Palace með hálfu fæði
  Fararstjórn í höndum okkar einstöku Kristínar Tryggvadóttir
  Rútur til og frá flugvelli
  Sigling á milli Salou og Cambrils
  Gönguferðir, bingo og samverustundir
Annað
  Staðfestingargjald er 50.000 kr á mann og er óendurkræft.
  Lágmarksþátttaka er 20 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka
  Ekki innifalið: Sameiginlegir kvöldverðir og annað sem ekki er talið upp hér fyrir ofan
  Bingó, Félagsvist, minigolf, gönguferðir, skoðunarferðir

Hótel

Hotel Olympus Palace er í 5 mínútna göngufæri frá Levante ströndinni á Salou. Þetta er huggulegt hótel á góðum stað í bænum, stutt er í alla þjónustu. Á hótelinu er rúmgóður hótelgarður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu, einnig er sundlaug á þaki hótelsins sem er einungis ætluð fullorðnum.

Herbergin er loftkæld með sjónvarpi, öryggsihólfi, hárþurrku og litlum ísskáp.

Fjölbreytt skemmtun á kvöldin.