Marrakech
Marrakech
Marrakech, þessi magnaða og seiðandi borg er blanda af gömlu og nýju.
Dáleiðandi gamli bærinn Medina er fullur af iðandi mannlífi, souk markaðir setja lit sinn á bæinn þar sem heimamenn reyna sitt besta að selja varninginn sinn, handunnin teppi, framandi krydd, minjagripir og fleiri spennandi munir á góðum prís, ef þú kannt að prútta!
Þröng stræti og götur með iðandi mannlífi, götusalar, kaffi og tehús heilla ferðalanga hvaðanæva úr heim heiminum. Torgið Jemaa el-Fnaa er fjölfarnasta torg borgarinnar.
Marrakech er staðsett fyrir rætur Atlasfjalla, borgin er ein af fjórum keisaraborgum Marokkó.
Borgin er þekkt sem Rauða borgin vegna rauðu sandsteinbygginga.
Einkennandi fyrir borgina eru fallegar litskrúðugar flísar, fallegir garðar og framandi plöntur. Ferðastu aftur í tímann til þessarar dáleiðandi borgar og upplifðu öðruvísi menningu, einstaka gestrisni, líflega tónlist og bragðmikla marakóska matargerð.
-
Sahara
Það er tilvalið að nota tækifærið og skella sér á úlfaldabak, upplifa Sahara eyðimörkina eða Atlasfjöllin.
-
Medina
Það er tilvalið að nota tækifærið og skella sér á úlfaldabak, upplifa Sahara eyðimörkina eða Atlasfjöllin.
-
Flogið
Flogið er til Marrakech með flugfélaginu Play frá október til maí.