Berlín
Berlín er eins og opin sögubók, þú finnur alls staðar tengingu við söguna. Engin eiginleg miðborg er í Berlín en borgin skiptist upp í mismunandi hverfi, hvert með sitt aðdráttarafl. Í Mitte er Brandenburgarhliðið sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar ásamt þinghúsinu. Við Kurfursterdamm má finna fjöldann allan af verslunum og er þetta breiðstræti vinsælasta verslunargata borgarinnar.