Fallegt og gott íbúðahótel sem hentar fjölskyldum einstaklega vel. Staðsett á Playa de las Americas á móti verslunarmiðstöðinni Parque Santiago 4, um 10 mínútna gangur er á "laugaveginn" þar sem fjörugt mannlíf, verslanir og veitingastaðir eru á hverju strái.
Fallegar íbúðirnar eru annars vegar með einu svefnherbergi og hins vegar með tveimur svefnherbergjum sem eru á 2 hæðum. Íbúðirnar er vel búnar með helstu nauðsynjum eins og fríu þráðlausu neti, loftkælingu, sjónvarpi og öryggishólfi (gegn gjaldi). Lítið eldhús er í öllum íbúðunum með hellum, örbylgjuofni, kaffivél, katli og ísskáp. Hótelgarðurinn er huggulegur og þar eru 3 sundlaugar, barnalaugin og önnur sundlaugin eru upphitaðar yfir vetrartímann einnig er snakkbar. Aðstaða til sólbaða er góð með sólbekkjum, sólhlífum og handklæðum. Fyrir yngsta fólkið er boðið upp á barnaklúbb, minidiskó, leiksvæði og barnalaug.
Á heilsulind hótelsins má finna alls kyns heilsu og líkamsmeðferðir, þar er innilaug og hægt að komast í tyrkneskt bað. Líkamsrækt hótelsins er stór og er einnig opin fyrir almenning en hún er ein sú vinsælasta á svæðinu. Hægt er að velja um fæði allt frá engu fæði yfir í allt innifalið. Frábær kostur í rólegu hverfi stutt frá miðbænum.
Sýna allt