Ondamar er vel staðsett íbúðahótel í Albufeira, stutt er að ganga á laugaveginn eða um 10 mínútur. Um 20 mínútna gangur er í gamla bæinn. Í næsta nágrenni eru verslanir, veitingastaðir og barir. Hótelið hentar fyrir fjölskyldur sem og pör eða vini. Garðurinn er rúmgóður með góðri aðstöðu til sólbaða. Íbúðirnar eru snyrtilegar í ljósum litum. Þær eru allar með eldhúskrók með fínni eldunaraðstöðu. Góður kostur á Albufeira.
Sýna allt