Eyjar hins eilífa sumars
Tenerife hefur verið vinsælasti áfangastaður Íslendinga árum saman og ekki að furða, þar sem hér er að finna eitt best loftslag í heimi, í aðeins 5 tíma fjarlægð frá Íslandi. Tenerife er ein af 8 eyjum Kanaríeyjaklasans og er þeirra stærst, og tekur á móti 5 milljónum ferðamanna á hverju ári. Hingað sækir fólk ár eftir ár, því náttúrufegurðin, menningin, matargerðin og mannlífið hér er einstök blanda sem fólk sækir í að heimsækja aftur og aftur. Hjá Aventura finnur þú hagkvæmustu ferðatilboðin, hvort sem þú leitar að 5 stjörnu lúxushóteli, eða einföldu 3ja stjörnu hóteli á miðri Amerísku ströndinni.
Hér finnur þú margar fallegustu strendur Spánar, hvort sem þú leitar að fáfarinni strönd þar sem þú ert einn með náttúrunni, eða sækir í líf og fjör og iðandi mannlíf.
Á suðurhluta eyjunnar í Adeja, finnur þú Fañabé stöndina, sem er ein sú vinsælasta á suðurhluta Tenerife. Hér er úrval vatnasports, veitingastaða, frábær aðstaða til sólbaða, einstaklega hrein og falleg strönd og frábær aðstaða til að njóta lífsins.
Í 10 mínutna akstursfjarlægð frá Santa Cruz de Tenerife, finnur þú dásamlega náttúrperlu, umlukta pálmatrjám og frábærum spænskum veitingastöðum. Ströndin er í miklu uppáhaldi hjá eyjarskeggjum sem eru ávallt góð meðmæli og hér er sandurinn eins og nýinnfluttur frá Sahara. Stórkostlega fallegur staður sem sýnir þér margt það besta frá Tenerife.
Ótrúleg strönd, með svörtum sandi og falin frá fjöldanum, en einstaklega skemmtilegur staður að heimsækja. Best er að komast með bátnum frá Santa Cruz og San Andres. Og vitaskuld er hægt að ganga þangað, en það er fyrir þá lengra komnu, því göngustígurinn getur verið erfiður yfirferðar. Ómissandi nátturperla sem þess virði er að heimsækja einn dag.
Fyrir þá sem eru búnir að fá nóg af ró og næði, þá má skoða aðra hlið af Tenerife, en hér er fjörugt næturlíf við allra hæfi, og glæsilegir skemmtistaðir um alla eyjuna.
Tramps, á Playa de las Americas er vinsæll næturklúbbur fyrir þá sem vilja fara á glæsilegan næturklúbb og skemmta sér undir morgun. Úrval næturklúbba er nánast endalaust.
Fyrir þá sem leita að lifandi tónlist, þá er Bulls Head þekktur sem einn helsti vettvangurinn fyrir tónlistarmenn og hér má finna rokk fram á nótt alla daga.
Það er gott að versla á Tenerife, enda verðlagið með því lægsta sem finnst því eyjarnar eru með lægri virðisaukaskatt en meginland Spánar, aðeins 6,5% og því má gera frábær kaup í fatnaði, raftækjum og flestu öðru. Auðvitað má finna öll þekktu merkin hér, stórar verslunarmiðstöðvar svo sem eins og Plaza del Duque á Costa Adeje, Safari eða Oasis á Los Cristianos. En það er ekki síður skemmtilegt að finna staðbundna markaði þar sem finna má einstaka vöru svo sem á Tenerife Perla, þekktur fyrir fallega skartgripi, Mercado Municipal í San Cristobal, með ótrúlegu úrvali af ferskri matvöru, og ávöxtum beint frá býli.
Flugfélög: Aventura býður hagkvæmustu fargjöld með öllum þeim flugfélögum sem fljúga til Tenerife.
Flugvellir:
Tenerife Sur – TFS. Aðalflugvöllurinn á Tenerife, þangað sem flestir fljúga til, og staðsettur rétt við Playa de las Americas, Costa Adeje og Los Cristianos.
Tenerife Norte – TFN. Staðsettur á norðurhluta eyjunnar, 11 kílómetra frá Santa Cruz, höfuðborginni. Hér eru tengiflug við allar hinar Kanaríeyjarnar.
Flugtími: Flogið 3-4 sinnum í viku allt árið. Flugtími frá Íslandi er 5 og hálfur tími í beinu flugi.
Farangur: Farangursheimild er 10 kg handfarangur, 42x32x25 cm að stærð með handfangi og hjólum, þarf að komast undir sætið fyrir framan. Innrituð taska 20 kg.
Samgöngur: Akstur til og frá flugvelli er í boði gegn gjaldi. Akstur getur tekið frá 15-40 mínútur, eftir því í hvaða bæ er gist og á hversu mörg hótel er ekið.
Tungumál: Á Kanaríeyjum er opinbera tungumálið spænska.
Tímabelti: Vestur-Evróputími – ( UTC +01:00)
Íbúafjöldi: 904.700
Vegabréf: Gilt vegabréf er nauðsynlegt þegar ferðast er til Kanaríeyja, en engin vegabréfaáritun nauðsynleg fyrir Íslendinga.
Þjórfé: Almennt er þjórfé ekki innifalið og ekki skylda, en fyrir góða þjónustu er miðað er við 5 – 10%
Veðurfar: Milt á sumrin, meðalhiti um 25 – 30 gráður, svalar á veturna, 18-25 gráður.
Rafmagn: Á Kanaríeyjum er 220 v
Ferðamannaskattur: Það er ekki sérstakur ferðamannaskattur á Kanaríeyjum
Almennar samgöngur: Góðar samgöngur eru með strætisvögnum. Hægt er að kaupa BonoBus, sem gildir um alla eyju fyrir um 15 evrur.
Vatnið: Vatnið er drykkjarhæft, en ekki gott í samanburði við það sem Íslendingar þekkja. Mælum með að kaupa vatn.
SKEMMTILEGT AÐ GERA
Skella sér í Siam Park og eyða deginum þar
Heimsækja Loro Parque
Njóta dags í Masca, týnda þorpinu
Eyða deginum í Santa Cruz, höfuðborg Tenerife
Gjaldmiðillinn á Spáni er evra