Ævintýraeyjan Fuerteventura er spennandi nýjung sem verður í boði næsta vetur. Gylltar strendur og kristaltær sjór er það sem einkennir Fuerteventura sem er ein af Kanaríeyjunum. Eyjan hefur lengi verið vinsæl meðal brimbrettafólks og náttúruunnenda.
Njóttu þín á stærsta og líflegasta dvalarstað Fuerteventura, Corralejo. Huggulegur miðbær þar sem verslanir, veitingastaðir og barir eru á hverju götuhorni. Ströndin hér er tilvalin fyrir sólarunnendur, fjölskyldur og pör. Hvítur sandur og mikið úrval vatnasports. Á kvöldin iðar miðbærinn af lífi, strandbarir, lifandi tónlist og skemmtiatriði á götum bæjarins.
Corralejo
Slakaðu á við sjávarsíðuna í Caleta de Fuste. Yndislegur dvalarstaður á austurhluta eyjunnar tilvalinn fyrir fjölskyldufríið. Mikið um vatnasport og við smábátahöfnina búa sæljón sem sýna gjarnan listir sínar, sjórinn er tær og þar má sjá fiska synda í sjónum. Fallegar gönguleiðir við höfnina og að ströndinni. Veitingastaðir og ferðamannaverslanir eru í þessum heillandi bæ.
Caleta de Fuste
Jandia, á suðurhluta eyjunnar, státar af fínum hvítum sandi og glæsilegu eldfjallalandslagi. Afslappandi andrúmsloft og hvítar strandlengjur minna einna helst á Karabíska hafið.
Jandia
Lítill huggulegur bær með veitingastöðum og litlum verslunum. Þekkasta kennileitið er án efa vitinn við ströndina. Ekta spænsk stemming er í gamla bænum þar sem litlir veitingastaðir og tapasbarir setja svip á bæinn.