preloader
Antalya í Tyrklandi
Vor 2025
Haust 2025

Flogið með Play frá 15.4 – 4.6 og frá 2.9 – 12.11

Antalya í Tyrklandi er sannköllud sólparadís

Páskaferð frá 15.4 – 23.4

með íslenskri fararstjórn og spennandi skoðunarferðum

Margir Íslendingar þekkja Antalya og Lara ströndina en á Lara svæðinu, sem þekkist sem tyrkneska rivíeran, hefur verið mikil uppbygging síðustu ár. Nóg af afþreyingu er á svæðinu og má helst nefna skemmtigarðinn The Land of the Legends í Belek sem er tívolí, vatnagarður og verslunarmiðstöð á einum stað.

Tyrkir eru vel þekktir fyrir einstaka gestrisni, góða þjónustu og ekki síst góðan mat. Antalya borg er gaman að heimsækja en hún er aðeins í 20 mínútna akstursfjarlægð frá Lara ströndinni, þar er hægt að kynnast heimamönnum með því að rölta um gamla bæinn og basarinn og fá sér tyrkneskt te hjá teppasölumanninum.

Hótelin á þessu svæði eru glæsileg með öllu inniföldu. Hótelgarðarnir eru stórir með mörgum sundlaugum, einkaströndum, vatnsrennibrautum og frábærri sólbaðsaðstöðu. Krakkaklúbbar fyrir börnin og lúxus heilsulindir og SPA fyrir fullorðna fólkið.

Skoðunarferðir í boði um páska 15.4 – 23.4

Borgarferð

Frábær leið til að kynnast Antalya, þessari fallegu borg, þar sem sagan hefur verið vel varðveitt meðan borgin hefur stækkað og dafnað. Við munum aka um borgina, stoppa í Kaleici sem er gamli bærinn og njóta þess að þræða þröng stræti í bænum og hlusta á fróðleik frá innfæddum leiðsögumanni. Hadrian’s Gate frá tímum Rómverja, Saat Kulesi (klukkuturninn) frá tímum Ottómanna og Cumhuriyet Square (Lýðveldistorgið) eru kennileiti sem við heimsækjum í þessari skemmtilegu ferð. Frjáls tími í lok ferðar en þá er tilvalið að skella sér á veitingastað við smábátahöfnina eða rölta um þennan fallega bæ, kaupa minjagripi og kynnast gestrisnum heimamönnum

Borgarferð á rafmagnshjóli

Skemmtileg leið til að skoða borgina Antalya. Við byrjum á því að fá kynningu á hjólunum, fáum hjálma og vesti og hefjum ferðina í Duden garðinum. Hjólað er eftir sjávarsíðunni á leið í gamla bæinn. Við hjólum eftir þröngum götum framhjá sögulegum byggingum og kennileitum að höfninni. Við heimsækjum „Ataturk House Museum“og „Traditional Antalya House Museum“ í gamla bænum. Við fáum að smakka tyrkneskt te og hefðbundið tyrkneskt snarl. Síðan er haldið áfram að hjóla um borgina og að lokum er ykkur skilað á hótelin ykkar með bros á vör eftir skemmtilegan dag.

Land of the Legends

Ferð í Land of the Legends er eitthvað fyrir alla aldurshópa. Þessi einstaki garður er bæði tívolí og vatnagarður, einnig eru fjölmargar skemmtanir yfir daginn meðal annars höfrunga- og sæljónasýning. Gestir þurfa að koma með sín eigin handklæði í garðinn. Á sama svæði er einnig skemmtileg verslunargata þar sem hægt er að gera góð kaup

Þorpsferð

Komdu með í þorpsferð og upplifðu alvöru tyrkneska menningu. Við skellum okkur í tyrkneskt þorp og kynnumst hefðbundnu tyrknesku þorpslífi. Þorpið er þekkt fyrir teppavefnað og við fáum að sjá handofin teppi hjá innfæddum. Við förum í heimsókn í mosku sem er bænahús múslima, fáum hefðbundna tyrkneska rétti í hádegismat og kynntumst heimamönnum. Þess má geta að konur þurfa að hylja hár, axlir og fætur í moskunni.

Antalya er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn í Tyrklandi þar sem yfir 10 milljónir ferðamanna heimsækja svæðið ár hvert. Antalya er 8. stærsta borgin í Tyrklandi og er íbúafjöldinn um 1.2 milljón. Borgin á sér langa sögu og eru rústir Rómverja vel sýnilegar í gamla bænum. Borgin sem fyrst hét Attaleia og var stofnuð árið 150 fyrir Krist af gríska konungsins Attalus II hefur einnig tilheyrt Rómverjum, Byzantine stórveldinu, Seljuc stórveldinu, Ottómönnum í yfir 500 ár, Ítölum eftir fyrri heimstyrjöldina og það var svo 1923 að borgin varð tyrknesk þegar Tyrkland öðlaðist sjálfstæði undir forystu Mustafa Kemal Ataturk, fyrsta forseta Tyrklands.

Í skjóli Taurus fjallgarðsins er þessi fallega borg varin norðanvindum og er því einstaklega veðursælt á svæðinu.
Í Antalya er helst ræktaðir sítrusávextir, ólífur, bómull og bananar.

Kaleici sem er gamli bærinn, hefur einstakan sjarma, þröng stræti sem liggja að smábátahöfninni og gamlar byggingar setja svip sinn á bæinn. Fyrir ofan smábátahöfnina er svo aðaltorg borgarinnar Cumhuriyet Square, á íslensku lýðveldistorgið, þar sem gamli bærinn mætir nýja bænum en borgin er byggð umhverfis gamla bæinn Kaleici. Leifar frá Ottómönnum, Seljúkum og Bizantinum má víða finna í Kaleici, ásamt grískum arkitektúr frá fornum tíma en 5 grískar rétttrúnaðarkirkjur eru í Kaleici.

Antalya er frábær blanda af fallegum hvítum ströndum og hefðbundinni tyrkneskri menningu

This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.