Sælkeraferð til Sikileyjar með Berglindi Guðmunds. 15. – 25. september 2025
Sælkeraferð til Sikileyjar með Berglindi Guðmunds. 15. – 25. september 2025
Fararstjóri
Berglind Guðmundsdóttir
Bóka hér

Upplifðu óviðjafnanlega sælkeraferð til Sikileyjar með Aventura!

Sannkölluð sælkeraferð til Sikileyjar, stærstu eyju Miðjarðarhafsins, þar sem einkar góð matargerð, rík saga og hefðir eru í fyrirrúmi. Sikiley er þekkt fyrir eitt hæsta virka eldfjall Evrópu sem er Etna, þægilegt Miðjarðarhafslofslag er á eyjunni og skemmtileg menning heimamanna gerir eyjuna að vinsælum ferðamannastað.

Dagskrá ferðarinnar er fjölbreytt og við kynnumst hefðbundnum sikileyskum mat, þetta verður veisla fyrir bragðlaukana!

Fyrri hluta ferðar verður gist í Giardini Naxos á Hotel Caesar Palace, seinni hluta ferðar verður gist í Cestellammare del Golfo á Hotel La Piazzetta.

Fararstjóri ferðarinnar er Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og markþjálfi

Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir er matgæðingur mikill og sérlegur aðdáandi Ítalíu. Berglind hefur gefið út matreiðslubækur, haldið matreiðslunámskeið og sjónvarpsþætti um mat og matargerð. Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að ferðast og kynnast fólki út frá matarmenningu hvers lands fyrir sig. Berglind er mikil áhugamanneskja um Ítalíu og gerði ferða- og lífstílsþættina Aldrei ein þar sem hún flakkar um Sikiley og sýndi okkur eitthvað af því besta sem eyjan hefur upp á að bjóða.

Ferðatilhögun

15. september 2025

Flogið frá Keflavík til Rómar með Icelandair og áfram til Catania á Sikiley

25. september 2025

Flogið frá Palermo til Rómar og áfram til Keflavíkur með Icelandair

Hotel Caesar Palace HOTEL CAESAR PALACE
Hotel Caesar Palace HOTEL CAESAR PALACE
Hotel Caesar Palace HOTEL CAESAR PALACE
Hotel La Piazzetta Hotel La Piazzetta
Hotel La Piazzetta Hotel La Piazzetta
Hotel La Piazzetta Hotel La Piazzetta
Innifalið
  Flug með 23 kg tösku
  Gisting í 5 nætur á Hotel Caesar Palace og 5 nætur á Hotel La Piazzetta
  Íslensk fararstjórn á meðan dvöl stendur
  Enskumælandi fararstjórn í ferðum
  Akstur til og frá flugvelli og í ferðir
  Fimm 3ja rétta kvöldverðir, án drykkja
  Fimm 3ja rétta kvöldverðir af hlaðborði með drykkjum
  Dagskrá sem er tilgreind, með fyrirvara um breytingar
Dagskrá
Dagskrá

  Koma til Catania, farið á Hotel Caesar Palace

  Heimsókn til Syracuse, gengið um bæinn og helstu kennileiti skoðuð eins og stórfenglegt Cathedral, gosbrunnurinn Arethusa og heillandi eyjan Ortigia sem er miðbær Syracuse.
Seinni partinn verður stoppað í matarsmökkun hjá heimamanni þar sem bragðað verður á Cannolo Siciliano, sem er gómsætt sikileyskt sætabrauð, fyllt með sætri ricotta fyllingu. Heimamenn trúa á “Cannolo-therapy” og fáum við að heyra hvað felst í henni.

  Dagurinn byrjar á heimsókn til Marzamemi sem er sögulegt fiskimannaþorp á suðaustur hluta eyjunnar og frægt fyrir túnfiskveiðar. Nafnið á bænum Marzamemi kemur líklega úr arabísku “marsa al hamem” eða Höfn skjaldbakanna.
Þorpið er yndislegt, ekta ítalskt, lítill miðbær með þröngum götum, kirkjan og veitingastaðirnir, þarna er rólegt og gott andrúmsloft. Aðaltorgið Piazza Margherita er líflegt og gaman er að rölta um í þessu fallega þorpi.
Eftir þetta er léttur sjávarrétta hádegisverður með vínglasi, þú bragðar á hefðbundnum sólþurrkuðum tómötum, ólífum, osti og auðvitað túnfiski.

  Gengið í fótspor “The Godfather”. Farið til Savoca sem er einn tökustaður myndarinnar Guðfaðirinn. Við njótum þess að smakka Sikileyskan granita eftirréttardrykk á Vitelli Bar eða á sambærilegum stað. Í framhaldi er haldið til þorpsins Forza D’Agro. Heimamenn eru stoltir af sögu, menningu og hefðum bæjarins sem er laus við stress og áreiti nútímans.

  Fallegi bærinn Noto heimsóttur, falinn gimsteinn á suðaustur hluta eyjunnar, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, fallegur arkitektúr í barokkstíl einkennir bæinn. Seinnipartinn verður farið til Modica og súkkulaði framleiðandi heimsóttur, þar sem súkkulaði að hætti heimamanna verður smakkað.

  Við færum okkur á vesturhluta eyjunnar og stoppum á leiðinni í Celafu tökum göngutúr eftir líflegu göngugötunni. Hádegisverður verður borðaður í Madonie Geopark þar sem við njótum fersks hráefnis. Farið á Hotel La Piazzetta í Castellammare Del Golfo.

  Frjáls dagur, tilvalinn til að kynnast bænum og njóta þess að vera í fríi á Ítalíu.

  Dagurinn í dag er tileinkaður sikileyskum venjum og hefðum. Við förum með hefðbundinni sikileyskri fjölskyldu á Ballaro markaðinn í Palermo og kaupum hráefni sem við matreiðum síðar úr á matreiðslunámskeiði. Frábær upplifun, fordrykkur, matreiðslunámskeið, 5 rétta máltíð ásamt víni og vatni með ekta sikileyskri fjölskyldu.

  Byrjum daginn í Marsala sem er fimmta stærsta borg Sikileyjar. Borgin er þekktust fyrir að Giuseppe Garibaldi kom á land í Marsala 11. maí 1860 (Expedition of the Thousand) og ekki má gleyma Marsala víninu, sem er þekkt um heim allan, bragðið svipar til púrtvíns eða sherry. Vínið er smakkað með léttum hádegisverði hjá innlendum framleiðanda í borginni. Seinnipart dags er heillandi Medieval Erice heimsótt, eftir smökkun goðsagnakenndu möndlukökum Maria Grammatico.

  Frjáls dagur, gott að hvíla sig í sólinni og njóta síðasta dagsins.

  Brottför frá Palermo, flogið til Rómar og þaðan til Íslands

ATH - Breytingar á dagskrá geta átt sér stað
Ekki innifalið
  Ferðamannaskattur sem greiðist á hóteli, 3 EUR á mann á dag.
  Þjórfé
  Annað sem ekki er tekið fram í ferðalýsingu og ekki talið í upptalningu á hvað sé innifalið.
Annað
  Staðfestingargjald er 50.000 kr á mann og er óafturkræft
  Lágmarksþátttaka er 25 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka.