preloader

Rafhjólaferð
til Marokkó

23. mars 2025 | 4 daga ferð eða vika!
með Hjólaskólanum

Erfiðleikastig

Auðvelt, rafmagnsfjallahjól

Hjólareynsla

Miðlungs

Takmarkað pláss

Hámarksfjöldi í ferðinni er 13 hjólarar

Við fjallahjólum saman í þrjá daga um afrísk fjöll og náttúru í allri sinni dýrð, á gömlum flutningsleiðum, asnaslóðum og sveitagötum, í gegnum Berbaþorp í einstökum Atlasfjöllunum. Þannig upplifum við hjólagleði í bland við litríka og fjöruga marokkóska menningu. Við höfum bílstjóra og einkakokka sem fylgja hjólahópnum og aðstoða ásamt því að matreiða dýrindis hádegismat úr héraði. Við gistum í fjöllunum á fyrsta klassa hóteli með góðri þjónustu, þar sem slakað er á í fallegu umhverfi eftir daginn. Eftir hjóladagana þrjá er haldið til Marrakech og gist á háklassa hóteli með hammam og heilsulind, veitingastað og sundlaug, stutt frá gamla miðbænum.

Fyrstu þrjár næturnar er gist í fjöllunum og þá er farið til Marrakech þar sem val er um að gista í eina nótt (sun-fim) eða lengja ferðina og gista þar í fjórar nætur (sun-sun) og leita uppi ævintýrin líkt og t.d. fara í eyðimörkina, á kamelbak, í loftbelgjaflug, í Medinuna og markaðinn og njóta þess að slaka á fína hótelinu með allri þjónustu. 

Þóra Katrín og Erla hafa rekið Hjólaskólann frá árinu 2018. Frá þeim tíma hafa þær farið í fjölmargar hjólaferðir með hópa erlendis, m.a. til Mallorca, Madeira, Tenerife, Marokkó, Ítalíu og Króatíu. Þær hafa yfirgripsmikla reynslu úr ferðageiranum og hafa yfir áratuga reynslu af fararstjórastörfum erlendis ásamt vinnu við skipulagningu ferða hér heima og erlendis. Báðar starfa þær einnig sem ökuleiðsögukonur á Íslandi. Það skemmtilegasta sem þær gera er að njóta lífsins hjólandi í góðu veðri og skemmtilegri náttúru ásamt því að borða góða mat og njóta lífsins lystisemda í fjörugum hópi ferðalanga.

Þóra Katrín og Erla eru vanar að hjóla með fólki á öllum getustigum og hafa haldið hjólanámskeið um árabil bæði fyrir fullorðna og börn við góðan orðstír. Þær eru með hjólaþjálfararéttindi frá alþjóðahjólreiðasambandinu (UCI) og einnig með þjálfararéttindi frá ÍSÍ ásamt réttindum frá PMBIA sem eru alþjóðleg þjálfara- og leiðsögumannaréttindi fyrir fjallahjól

Innifalið
Ekki innifalið

4 daga ferð 23. - 27. mars

kr. 379.000

á farþega m.v. tveggja manna herbergi

kr. 399.900

eins manns herbergi

7 daga ferð 23. - 30. mars

kr. 429.000

á farþega m.v. tveggja manna herbergi

kr. 469.000

eins manns herbergi

Vinsamlegast hafið samband við Aventura
í síma 5562000 til að bóka í ferðina

This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.