Kristín Tryggvadóttir verður á Kanarí í vetur, skelltu þér með í 2, 3 eða 4 vikur
Kristín Tyggvadóttir er þaulvanur fararstjóri og einkar vinsæl. Kristín hóf störf hjá íslenskri ferðaskrifstofu vorið 1998 sem fararstjóri erlendis. Kristín hefur unnið við fararstjórn á Spáni og Kanaríeyjum allt árið um kring s.l. 24 ár og einnig farið í sérferðir til Grikklands, Tyrklands, Lettlands, Búdapest, Slóveníu, Kúbu o.fl. staða. Ferðalög eru eitt af aðal áhugamálum Kristínar ásamt útiveru og samverustundum með góðu fólki. Kristín hefur starfað fyrir Aventura síðan 2021.
Innifalið í verði
Flug með Play, 20 kg innrituð taska ásamt 10 kg handfarangri þó ekki stærri en 42x32x25 cm að stærð með handfangi og hjólum
Fararstjórn í höndum okkar einstöku Kristínar Tryggvadóttir
Rútur til og frá flugvelli
Frábær dagskrá
Annað
Staðfestingargjald er 50.000 kr á mann og er óendurkræft
Lágmarksþátttaka er 20 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka
Ekki innifalið: Sameiginlegir kvöldverðir og annað sem ekki er talið upp hér fyrir ofan
Bingó, Félagsvist, minigolf, gönguferðir, skoðunarferðir í næstu þorp og bæi
Í hjarta Playa del Ingles er Jardin del Atlantico, skemmtilegt íbúðahótel. Íbúðirnar eru innréttaðar með ljósum innréttingum, þær eru notalegar og snyrtilegar. Eldhúskrókur í íbúðunum þar er ketill, brauðrist og ísskápur.
Hótel Servatur Don Miguel aðeins fyrir 18 ára og eldri er staðsett í miðbæ Playa del Inglés í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá yumbo centre, á hinni stórkostlegu eyju Gran Canaria.
Í hótelgarðinum er sundlaug, nuddpottur og góð sólbaðsaðstaða í kring með sólbekkjum, sólhlífum og sundlaugabar.
Hotel Gran Canaria Princess – Adults Only er með upphitaðar sundlaugar, líkamsræktaraðstöðu, bar og ókeypis WiFi. Það er staðsett í 750 metra fjarlægð frá Playa del Ingles-ströndinni á Gran Canaria.
Öll loftkældu herbergin á hótelinu státa af svölum með útihúsgögnum, 32″ flatskjá og baðherbergi með sturtu og hárblásara. Te-/kaffiaðstaða, minibar, koddaúrval, öryggishólf og herbergisþjónusta eru í boði gegn beiðni og aukagjaldi.
Veitingastaður hótelsins býður upp á þemakvöldverði ásamt opnu eldhúsi. Boðið er upp á skemmtidagskrá á daginn og á kvöldin, þar á meðal lifandi tónlist og sýningar. Á verönd hótelsins er að finna borðtennisaðstöðu.
Á gististaðnum er vellíðunaraðstaða með gufubaði, heitum potti og balírúmum. Gestir geta haft það notalegt á veröndunum og við sundlaugarbarinn.
Athugið, dagskrá verður mismunandi á milli hótela þar sem mest verður í gangi fyrir gesti Gran Canaria Princess. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.