Tignarleg og glæsileg Búdapest getur hentað bæði þeim sem vilja sjá forna Evrópu og læra meira um sögu og þeim sem vilja versla og njóta í mat og drykk. Búdapest er hin raunverulega perla Evrópu – stórkostleg leikhús og hallir, fornar víggirðingar, sögulegir minnisvarðar um stóru ungversku konungana og auðvitað hið stórbrotna þinghús, sem er fallegt á hverjum tíma dags eða nætur.
Þetta er ekki allt sem ungverska höfuðborgin er rík af. Það er ómögulegt að neita sjálfum sér ánægjunni af því að sitja við borð á notalegum veitingastað, smakka dásamlegt gulash og drekka glas af Tokai-víni á kyrrlátu kvöldi. Þú getur ekki horft framhjá hinum frægu baðhúsum sem Búdapest er fræg fyrir í allri Evrópu. Það er erfitt að telja upp öll aðdráttaröfl þessarar borgar.
Svo það er betra að koma í borgarferð til Búdapest og sjá allt með eigin augum.
SKEMMTILEGT AÐ GERA Í BÚDAPEST
Skoða ungverska þinghúsið sem er glæsileg bygging og helsta kennileiti borgarinnar. Hægt er að borga sig inn og fá leiðsögn um bygginguna, nánari upplýsingar hér.
Skella sér í Széchenyi Baths sem er einn vinsælasti baðstaðurinn í borginni, með 15 innilaugum og 3 stórum útilaugum, einnig er hægt að komast í sauna og fjölmargar nuddmeðferðir. Böðin eru opin frameftir á kvöldin og á laugardagskvöldum er haldið partý með tónlist og miklu fjöri. Nánari upplýsingar
Kastalinn í Búdapest er efst á Castle Hill og er eitt af þekktustu kennileitum borgarinnar, þarna var sagan skrifuð. Stórfenglegt útsýni yfir Keðjubrúnna og Þinghúsið. Nánari upplýsingar hér.
Sign in
Sign up
Sign in to your account
Create an account
Sign Up
Reset Password
This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.